Fullvinnsla umhverfisvottaðra áburðarafurða úr sjávarþörungum

Verkefnið Fullvinnsla umhverfisvottaðra áburðarafurða úr sjávarþörungum er samstarfsverkefni milli Matís ohf, Isea ehf og Landbúnaðarháskóla Íslands (LBHÍ). Verkefnið snýr að fullvinnslu á íslensku klóþangi (Ascophyllum nodosum) úr Breiðafirði með það markmið að framleiða hágæða, umhverfisvottaðar áburðarafurðir. Í verkefninu verða nokkrar frumgerðir þróaðar og framleiðsluferlar bestaðir. Áhrif og virkni afurðanna á plöntur verða einnig kannaðar og tengdar við framleiðsluferla og efnainnihald þeirra. Jafnframt verður könnuð uppskölun á framleiðsluferlinu. Þessar rannsóknir munu leiða til mikilvægra upplýsinga og þekkingar um gæði og virkni áburðarafurða úr klóþangi fyrir íslenskan landbúnað.

Verkefnið byggir á niðurstöðum fyrra samstarfsverkefnis Matís og Isea, sem styrkt var af Matvælasjóði og fjallaði um þróun vinnsluferils til fullnýtingar á klóþangi úr Breiðafirði, sjá tengil hér að neðan.

Með þessum rannsóknum er stuðlað að aukinni nýtingu á íslenskum sjávarþörungum, styrkingu innlendrar virðiskeðju og þróun sjálfbærra landbúnaðarlausna hérlendis.

Skrunaðu efst