Rannsóknarými
Rannsóknastofurými Matís , Vínlandsleið 14
Rannsóknastofurými þar sem unnt er að framkvæma ýmsar minniháttar tilraunir. Um er að ræða 4 vinnuborð sem eru 5 metrar að lengd og tveir frásogsskápar eru í rýminu.
Tækjabúnaður sem er í aðstöðunni er m.a eftirfarandi:
- Kælir
- Hitaskápur sem stilla má hitastig frá 60 -200°C
- Hitabað
- Smásjár
- Vogir
- Ljósmælir
Hægt er að semja um aðgang að smærri rannsóknatækjum s.s. pH mæli, eimingartækjum og fl. staðsett annars staðar á rannsóknastofum Matís að Vínlandsleið 12 eða fá aðstoð við mælingar ef ekki er unnt að leyfa notkun tækjanna af einhverjum ástæðum.