Matís gegnir forystuhlutverki í tveimur nýjum og umfangsmiklum fjölþjóðaverkefnum sem Evrópusambandið hefur ákveðið að styrkja til þriggja ára, EcoFishMan og AMYLOMICS.
Styrkir ESB hljóða upp á alls 5,5 milljónir evra, jafnvirði um 860 milljóna króna. Þar af er hlutur Matís alls 950.000 evrur til beggja verkefna, jafnvirði um 150 milljóna króna. Matís stjórnar báðum verkefnum
Í því felst að ESB lætur allt styrktarféð renna til Matís sem síðan greiðir innlendum og erlendum samstarfsaðilum sínum. Talsverður hluti verkefnanna verður unninn á starfsstöðvum Matís á landsbyggðinni, enda byggjast þau meðal annars á góðu samstarfi Matís við fyrirtæki um allt land. Meistara- og doktorsnemendur munu starfa að verkefnunum.
Evrópusambandið væntir þess að í EcoFishMan verkefninu verði þróuð ný aðferðafræði sem nýtist við breytingar og umbætur á fiskveiðistjórnunarkerfi sambandsins. Lögð er áhersla á samstarf við sjómenn, útgerð og vinnslu og að hagnýta upplýsingar úr rafrænum afladagbókum. Markmið verkefnisins er að stuðla að vistvænni, sjálfbærri og hagrænni stjórnun með sérstakri áherslu á rekjanleika og að lágmarka brottkast afla.
Að EcoFishMan verkefninu koma alls 13 stofnanir, fyrirtæki og háskólar í átta Evrópulöndum, þar á meðal Háskóli Íslands og háskólinn í Tromsö í Noregi. Gert er ráð fyrir að verkefnið kosti 3,7 milljónir evra á þremur árum og nemur styrkur ESB 3,0 milljónum evra.
- Dr. Anna Kristín Daníelsdóttir, sviðsstjóri hjá Matís, verður verkefnisstjóri og dr. Sveinn Margeirsson, sviðsstjóri hjá Matís, verður með henni í vísindanefnd verkefnisins.
AMYLOMICS verkefnið mun hagnýta fjölbreytt lífríki jarðhitasvæða á Íslandi við að þróa hitaþolin ensím til notkunar í sterkju- og sykruiðnaði. Hita- og sýruþol eru nauðsynlegir eiginleikar í slíkum iðnaðarferlum en þá má finna í ensímum lífvera á hverasvæðum.
Meðal þátttakenda í AMYLOMICS er franska fyrirtækið Roquette Frères, sem er eitt hið stærsta í Evrópu í framleiðslu sterkju og afleiddra afurða, með ársveltu upp á um 7 milljarða evra. Roquette Frères fær ensím, sem þróuð verða í verkefninu, til prófunar og nýsköpunar í framleiðslu sinni.
- Dr. Guðmundur Óli Hreggviðsson, fagstjóri hjá Matís, verður verkefnisstjóri. Tvö önnur íslensk fyrirtæki, taka beinan þátt í verkefninu, Roche Nimblegen og Prokazyme.
14 stig af 15 mögulegum í faglegu mati!
Sjöfn Sigurgísladóttir, forstjóri Matís, segir að verkefnin tvö og stuðningur ESB við þau séu góð tíðindi fyrir íslenskt vísindasamfélag og viðurkenning fyrir Matís:
„Rannsóknarstyrkir ESB eru afar eftirsóttir og mikil samkeppni er um þá. EcoFishMan hlaut 14 stig af 15 mögulegum í mati fagnefndar ESB, sem er frábær árangur og skilaði verkefninu í hús hjá Matís og samstarfsaðilum. Með þessu festum við okkur enn frekar í sessi í alþjóðlegu vísindasamstarfi og svo er auðvitað sérstakur fengur að því fyrir Íslendinga að fá nú verulega fjármuni inn í samfélagið erlendis frá á þessum samdráttar- og niðurskurðartímum.“
Nánar um EcoFishMan
Sameiginleg fiskveiðistefna Evrópusambandsins skilar ekki þeim árangri sem til er ætlast af henni. Nægir að nefna að hátt í 90% fiskistofna í lögsögu ESB-ríkja eru ofveiddir og þriðjungur stofnanna er í útrýmingarhættu vegna þess að þeir ná ekki að endurnýjast. Brottkast er stórfellt vandamál, til dæmis er áætlað að 30-55% þorskafla úr Norðursjó sé fleygt fyrir borð.
Eitt af markmiðum EcoFishMan verkefnisins er að greina það sem vel hefur tekist í íslenskri fiskveiðistjórnun og „flytja úr landi“. Jafnframt því er horft til meira samstarfs við þá sem starfa að veiðum og vinnslu í sjávarútveginum.
Meðal íslenskra aðila, sem leitað verður til vegna faglegrar þekkingar eru Fiskistofa, Samtök fiskvinnslustöðva, Landssamband íslenskra útvegsmanna, Hafrannsóknastofnunin, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneyti, Landssamband smábátaeigenda og nokkur íslensk fyrirtæki sem framleiða tæknibúnað fyrir sjávarútveginn, svo sem Trackwell, Vaki og Marel.
Nánar um AMYLOMICS
Líftækniverkefnið AMYLOMICS er hugmynd sérfræðinga Matís og Ísland verður að miklu leyti vettvangur þess. Fjölbreytileiki jarðhitasvæða á Íslandi er einstakur og mikil sérfræðiþekking á lífríki þeirra er til staðar hjá Matís. Verkefnið byggist á því að þróa tækni til að nýta þessa sérstöku íslensku erfðauppsprettu, framleiða ensím með ákveðna, mikilvæga eiginleika og kanna möguleika til að nýta þau á ýmsum sviðum efna- og matvælaiðnaðar.
Meðal þátttakenda í AMYLOMICS er franska fyrirtækið Roquette Frères, sem er eitt hið stærsta í Evrópu í framleiðslu sterkju og afleiddra afurða, með ársveltu upp á um 7 milljarða evra. Roquette Frères fær ensím, sem þróuð verða í verkefninu, til prófunar og nýsköpunar í framleiðslu sinni.
Fyrirtækið Roche Nimblegen tekur einnig þátt í verkefninu og mun í samvinnu við Matís þróa og endurbæta aðferðir til að ná erfðavísum úr lífríki hvera.
Nánari upplýsingar: Sjöfn Sigurgísladóttir forstjóri, sími 858 5119.