Faghópar Matís
Fagsviði Matís er skipt í níu rannsóknahópa, þar sem sérfræðingar mynda þann þekkingargrunn og þá kjarnastarfsemi, sem þarf til úrlausnar þeirra margvíslegu rannsókna- og nýsköpunarverkefna sem unnin eru á hverjum tíma: Lífefni, Líftækni, Erfðir, Efnamælingar, Lífmassi og mælingar, Sjálfbærn, Örverumælingar, Umhverfi og loftgæði og Virðiskeðju. Fagsviðið inniheldur auk þess tvo hópa af sérfræðingum í mælingum, annars vegar á örverum og hins vegar á efnum, en innan þessara hópa er sérstaklega horft til greininga á öryggi, heilnæmi og næringargildi matvæla og skyldra afurða. Báðir mælingahóparnir styðja við úrlausn rannsóknaverkefna sem og að þjónusta atvinnulífið með mælingum, ráðgjöf og upplýsingum.
Oft er þörf fyrir margvíslegan þekkingargrunn við úrlausn hinna fjölbreyttu verkefna Matís og því vinna sérfræðingar innan mismunandi faghópa gjarna saman að því að móta verkefnin og framkvæma þá rannsókna-, mælinga- og nýsköpunarvinnu sem þarf; allt til hagsbóta fyrir atvinnulífið sem Matís þjónustar.
Starfsemi Matís er skipt í tvö áherslusvið
- Rannsóknir – sviðsstjóri: Jónas R. Viðarsson
- Þjónusta – sviðsstjóri: Guðmundur Stefánsson
Fagstjórar
- Efnamælingar – Natasa Desnica
- Erfðir – Björn Þór Aðalsteinsson
- Lífefni – Rósa Jónsdóttir
- Lífmassi og mælingar – Stefán Þór Eysteinsson
- Líftækni – Ólafur H Friðjónsson
- Sjálfbærni – Birgir Örn Smárason
- Virðiskeðja – Valur N. Gunnlaugsson
- Örverumælingar – Elísabet Eik Guðmundsdóttir
- Loftgæði og mælingar – Kristmann Gíslason
