Háskóli Íslands og Matís ohf. gerðu í dag samning sín á milli um víðtækt samstarf á sviði kennslu og rannsókna. Kristín Ingólfsdóttir, rektor Háskóla Íslands og Sveinn Margeirsson, forstjóri Matís undirrituðu samninginn.
Með samningnum er grunnur lagður að frekari eflingu fræðilegrar og verklegrar menntunar á sviði matvælarannsókna og matvælaöryggis auk samstarfs á öðrum sviðum kennslu og rannsókna. Samkomulagið er mikilvægt skref í formlegu samstarfi Matís ohf. og Háskóla Íslands um samnýtingu aðfanga, innviða rannsókna og mannauðs. Það felur í sér ásetning um að vera í fararbroddi á þeim fræðasviðum sem samningurinn tekur til.
Á sama tíma var gerður sérstakur samningur milli Matvæla- og næringarfræðideildar HÍ og Matís um samstarf í kennslu og rannsóknum.
Háskóli Íslands og Matís hafa átt í farsælu samstarfi um langt skeið um kennslu en starfsmenn Matís hafa í gegnum tíðina kennt við HÍ og munu gera það áfram. Báðir aðilar hafa byggt upp mikla þekkingu á matvælafræði, líftækni, erfðafræði og fleiri greinum. Sem dæmi þá hafa starfsmenn sem starfa bæði hjá Matís og HÍ birt tæplega 90 vísindagreinar í ritrýndum tímaritum á sl. þremur árum og á sama tímabili hafa 10 nemendur varið doktorsritgerðir sínar og 15 meistaranemendur útskrifast þar sem verkefnin hafa verið unnin í samstarfi Matís og Háskóla Íslands. Í dag eru átta doktorsnemendur og 19 nemendur í meistaranámi við HÍ að vinna sín rannsóknaverkefni með Matís. Auk þess hafa Matís og HÍ sótt um og eru saman í nokkrum alþjóðlegum verkefnum.
Mikilvægt er að samnýta þessa þekkingu í tengslum við í nýsköpun og aukna verðmætasköpun í matvælaframleiðslu á Íslandi.
Matís er leiðandi á Íslandi í rannsóknum á sviði matvælaframleiðslu, og matvælaöryggis. Stefna Matís er að efla samkeppnishæfni íslenskra afurða og atvinnulífs, bæta lýðheilsu, tryggja matvælaöryggi og sjálfbæra nýtingu umhverfisins með rannsóknum, nýsköpun og þjónustu á sviði matvæla, líftækni og erfðatækni. Til að framfylgja stefnu sinni er nauðsynlegt að Matís vinni í samstarfi við Háskóla Íslands að kennslu og þjálfun nemenda.
Háskóli Íslands hefur mótað sér stefnu til ársins 2016, þar sem m.a. er lögð áhersla á doktorsnám, framúrskarandi rannsóknir og kennslu, auk áherslu á samstarf við stofnanir og fyrirtæki eins og Matís ohf. Á vegum HÍ eru stundaðar víðtækar rannsóknir og kennsla á þeim fræðasviðum sem Matís ohf. fæst við, einkum á vettvangi heilbrigðisvísinda- og verkfræði- og náttúruvísindasviða skólans.
Helstu atriði samnings Háskóla Íslands og Matís ohf. eru:
- Efla fræðilega og verklega menntun háskólanema á þeim fræðasviðum sem samningurinn tekur til.
- Auka rannsóknir á sviði matvælafræði, matvælaverkfræði, líftækni og matvælaöryggis og vera jafnframt í fararbroddi í nýsköpun á þessum fræðasviðum.
- Vera leiðandi á völdum sérfræðisviðum og hafa faglega sérstöðu í því skyni að laða að nemendur og fræðimenn á alþjóðlegum vettvangi.
- Tryggja að gæði rannsókna samningsaðila séu sambærileg á við það sem best gerist á alþjóðlegum vettvangi.
- Nýta möguleika til samreksturs tækja í þágu sameiginlegra verkefna.
- Fjölga nemendum í grunn- og framhaldsnámi á fræðasviðum samningsins.
Auk þess munu samningsaðilar leitast við að tengja starfsemi Stofnunar rannsóknasetra Háskóla Íslands og starfsstöðva Matís ohf. utan Reykjavíkur.