Skírt smjör framleitt í Matarsmiðju Matís

Sprotafyrirtækið Biohackers Corner framleiðir Ghee, eða skírt smjör, sem er smjör sem hefur verið unnið þannig að þurrefni og vatn hafa verið fjarlægð og smjörfitan ein er eftir. Skírt smjör hefur mun hærra bræðslumark en venjulegt smjör og hentar vel til steikingar, auk þess sem það er auðmeltanlegra og mjög nærandi.

Magdalena og Simon eiginmaður hennar stofnuðu fyrirtækið Biohackers Corner sem framleiðir skírt smjör úr íslensku hráefni. Leiðir þeirra lágu fyrst saman fyrir um 10 árum í skiptinámi í Tyrklandi, en dvöl þeirra þar leiddi ekki aðeins til vináttu heldur kviknaði hjá þeim ævintýraþrá sem að lokum bar þau til Íslands.

Viðskiptahugmynd þeirra, að búa til skírt smjör, kviknaði út frá persónulegum heilsufarsþörfum, sameiginlegri ást þeirra á góðum mat og á gæðum íslenskra mjólkurvara.

Magdalena hafði búið til skýrt smjör fyrir sjálfa sig í mörg ár, en hún tók upp á því á ferðalögum um Indland og Nepal. Þar lærði hún Ayurveda, sem eru óhefðbundnar lækningar sem leggja áherslu á samhljóm líkama, huga og sálar.

Þegar þau uppgötvuðu íslenska smjörið (sérstaklega ósaltaða smjörið) og gæði þess, fengu þau þessa hugmynd. Og þannig varð íslenskt skírt smjör til.

Skírt smjör er hollari valkostur en aðrir fitugjafar, með háu bræðslumarki (250°C), ríkulegu bragði sem er örlítið karamelluserað, og er heppilegt fyrir fólk með mjólkuróþol og meltingarvandamál. Framleiðslan í Matarsmiðju Matís hentar vinnslunni vel.

Hægt er að finna skíra smjörið og fleiri heilsuvörur frá þeim í verslunum eins og Taste of Iceland, Mamma Veit Best, Systrasamlaginu, Proud Little Puffin og Kolaportinu auk fjölda verslana í kringum Reykjavík. Einnig er hægt að ganga frá pöntun á vefsíðunni www.biohackerscorner.com.

Scroll to Top