Hvað er hægt að gera við bygg sem hefur ekki náð fullum þroska?

Nú í september eru bændur víða um land að skera korn á ökrum sínum og flytja til þurrkunar eða ganga frá því með öðrum hætti sem fóður fyrir búfé. Bændur rækta fyrst og fremst bygg en ræktun á höfrum fer vaxandi. Almennt gengur kornrækt vel á Íslandi en veðurfar er misjafnt milli ára. Það kemur fyrir að kornið nái ekki fullum þroska. Hvað er þá hægt að gera við kornið?

Til að svara þeirri spurningu sótti Eiríkur Blöndal, bóndi og landbúnaðarverkfræðingur á Jaðri í Borgarfirði, um styrk úr Matvælasjóði. Styrkur fékkst og verkefnið var unnið í samstafi við Matís. Óþroskuðu byggi var gefið heitið léttbygg. Í stuttu máli voru niðurstöðurnar þær að með einföldum ráðstöfunum var hægt að nota léttbyggið með öðru fóðri fyrir mjólkurkýr og einnig var hægt að baka brauð úr léttbygginu.

Nánar er sagt frá niðurstöðunum hér:

Scroll to Top