Geymsluþol léttsaltaðra flaka í frosti / Stability of lightly salted fillets during frozen storage

Markmið verkefnisins var að rannsaka áhrifin af frystingu á stöðugleika léttsaltaðra þorskflaka (Gadus morhua). Flökin voru geymd við tvö mismunandi hitastig (-18°C og -25°C) í viku, þrjá og sex mánuði. Tvær mismunandi blóðgunaraðferðir voru notaðar til að meta áhrifin af blóðgun (hefðbundin blóðgun og dauðblóðgun). Áhrifin af tveim mismunandi flakastærðum á hráefnisgæði eftir geymslu í frosti voru einnig skoðuð (lítil flök sem voru 500-1000 grömm á þyngd og stór flök sem voru meira en 1500 grömm á þyngd). Aldur hráefnis fyrir vinnslu var einnig þáttur sem var skoðaður (1 daga gömul flök annarsvegar og 4 daga gömul flök hinsvegar). Breytingar á hráefnisgæðum í frosti voru mældar með því að skoða: vatnsinnihald, vatnsheldni, íshúðun, drip við þíðingu, lit, eldunarnýtingu, magn fosfats, salts, fitu, frírra fitusýra og fosfólípíða. Í heildina voru 180 flök notuð við rannsóknina. Sýnin voru fengin frá tveimur framleiðendum. Framleiðandi A safnaði sýnum í júlí og framleiðandi B safnaði sýnum í október.

Flök af fiski sem var blóðgaður á hefðbundinn hátt sýndu minna drip við þíðingu og þau voru einnig hvítari miðað við flök af dauðblóðguðum fiski. Aldurinn á fisknum fyrir vinnslu skipti miklu máli hvað varðar hráefnisgæði, 1 daga gömul flök höfðu minni nýtingu og voru gulari heldur en 4 daga gömul flök. Niðurstöðurnar sýndu að stór flök eru betri samanborið við lítil flök, þar sem að stóru flökin voru ljósari, höfðu betri eldunarnýtingu og þar af leiðandi einnig betri heildarnýtingu. Íshúðun er hentug aðferð til að koma í veg fyrir litabreytingar á flökunum. Léttsöltuð flök í október voru hvítari, höfðu meiri vatnsheldni, meiri fitu, meira magn fosfólípíða, minna drip við þíðingu og betri eldunarnýtingu samanborið við flök í júlí. Hinsvegar var vatnsinnihaldið svipað á milli flaka sem veidd voru í júlí og október. Léttsöltun hafði engin áhrif á drip við þíðingu. Hinsvegar hafði saltmagn áhrif á vatnsinnihald, því meira sem saltinnihaldið var í flökunum því meira vatnsinnihald var einnig í flökunum. Niðurstöðurnar sýndu einnig fram á að fosfat er bætt í flökin í framleiðslunni en fosfatið hafði engin áhrif á nýtni flakanna, frekar en drip við þíðingu. Auk þess, því meira sem var af fosfati í flökunum, því lægra vatnsinnihald og vatnsheldni var einnig í flökunum. Vatnsheldni og vatnsinnihald í léttsöltuðu þorskflökunum breyttist ekki á geymslutímanum við -18°C og -25°C. Ljósi liturinn í léttsöltuðu þorskflökunum hafði tilhneigingu til að aukast í frosti á geymslutímanum, sérstaklegar við geymslu við -25°C.

Scroll to Top