Matís hefur birt í heild sinni skýrsluna Genetic diversity of salmon in Laxá in Aðaldal, að fengnu leyfi Landsvirkjunar sem var kaupandi verkefnisins. Skýrslan var unnin af erfðateymi Matís og dagsett 27. mars 2024. Birtingin kemur í kjölfar umfjöllunar í fjölmiðlum þar sem niðurstöður skýrslunnar voru gagnrýndar. Af því tilefni vill Matís árétta að fyrirtækið stendur við skýrsluna, aðferðafræði hennar og niðurstöður.
Markmið rannsóknarinnar var að greina breytingar á erfðasamsetningu laxa í Laxá í Aðaldal yfir tíma og svara þremur lykilspurningum um arfblendni, samsætufjölbreytni og virka stofnstærð. Rakning einstaklinga úr veiðisýnum frá 1980, 2022 og 2023 til 26 laxastofna víðs vegar um landið sýnir að breytingar hafa orðið á stofngerð í ánni. Hlutfall laxa sem rekja má til Laxár hefur lækkað úr 70,3% árið 1980 í 25,5% árið 2023, á meðan hlutfall laxa sem rekja má til annarra áa hefur aukist.
Rannsóknin byggir á alþjóðlega viðurkenndum aðferðum í stofnerfðafræði og notkun gagnagrunnsins ONCOR til upprunarakningar. Samkvæmt sérfræðingum Matís er erfðamunur milli íslenskra laxastofna almennt meiri en víða annars staðar í Evrópu, sem styrkir forsendur aðferðafræðinnar við rakningu til einstakra áa.
Niðurstöðurnar vekja upp mikilvægar spurningar um þróun og uppruna laxastofnsins í Laxá í Aðaldal. Matís telur mikilvægt að rannsóknir af þessu tagi séu ræddar á faglegum grunni og að frekari rannsóknir fari fram til að auka þekkingu á erfðabreytileika og þróun íslenskra laxastofna.
Skýrslan er aðgengileg í heild á vef Matís og er öllum opið að kynna sér niðurstöður hennar og aðferðafræði.

