Á dögunum heimsóttu Tina Birk og Bo Björn Greve, kennarar við Københavns Professionshøjskole (KP), Matís. Tilgangur heimsóknarinnar var tvíþættur; annars vegar að kynna sér starfsemi Matís og hins vegar að kynna nám við KP.
Matís hefur á undanförnum árum tekið á móti fjölmörgum nemendum frá KP sem koma til Matís sem verknemar og ljúka þar verklega hluta náms síns. Samstarfið hefur því skapað mikilvæg tengsl milli stofnananna og veitt nemendum tækifæri til að öðlast hagnýta reynslu í rannsóknum.
Heimsóknin var afar ánægjuleg og er mikilvægt skref í að efla enn frekar tengsl og samstarf Matís og Københavns Professionshøjskole.

