Fjölmörg erindi á dagskrá WEFTA 2026 hafa beina skírskotun til íslensks sjávarútvegs, fiskeldis og þróunar í bláa lífhagkerfinu. Þar má nefna að Marcus Hoff Hansen frá Møreforsking í Noregi flytur erindið “Industrial Non-Destructive Spectroscopy for Assessing Seasonal Texture-Related Physicochemical Properties of Atlantic Cod Fillets”, þar sem fjallað verður um hvernig ný mælitækni getur nýst til að meta gæði þorsks og Heidi Anita Nilsen frá Nofima fjallar síðan um hvernig hægt er að spá fyrir um hversu mikið er eftir af geymsluþoli þorskflaka.
Kristin Beate Hansen frá Nofima flytur erindið “The hidden weight of water in commercial cod catches”, sem ætti að vekja sérstakan áhuga í íslenskum sjávarútvegi. Torbjørn Tobiassen frá Nofima fjallar jafnframt um skemmdir og galla sem tengjast mismunandi veiðarfærum í norskum þorskveiðum í erindinu “Catch Damage and Quality Defects Associated with Different Fishing Gear in the Norwegian Cod Fishery”. Fullnýting hráefna verður einnig áberandi í dagskránni. Brede Bjerke Eiken frá Møreforsking flytur erindið “Effects of on-board processing of Gadus morhua heads on the storage efficiency and the quality of subsequent enzymatic hydrolysis”, þar sem skoðað er hvernig vinnsla þorskhausa um borð getur bætt bæði geymslunýtingu og möguleika á frekari verðmætasköpun. Eva H. Falch frá NTNU fjallar um stöðugleika fitu og nýtingu hliðarstrauma í síldarvinnslu í erindinu “Linking Lipid Stability and Resource Utilisation: A Quality Flow Analysis of Herring Processing Side Streams”. Inger Beate Standal frá SINTEF flytur erindið “What should we do with the dead fish? Safe use of fish mortalities”, sem tengist beint þeim áskorunum sem fylgja vexti fiskeldis og aukinni þörf fyrir örugga og verðmæta nýtingu lífmassa sem fellur til. Sherry Stephanie Chan frá Nofima fjallar einnig um áhrif sub-chilling á gæði og stöðugleika innyfla og flaka úr Atlantshafslaxi.
Þörungar verða sömuleiðis fyrirferðarmiklir. Hanne K. Mæhre fjallar um framleiðslu á hágæða sykurþara til matvæla og Tom Ståle Nordtvedt um áhrif örþörunga í fóðri á gæði og næringarsamsetningu eldislax. Ditte Baun Hermund frá DTU kynnir jafnframt leið til að auðga Nannochloropsis oceanica með D-vítamíni með UV-meðhöndlun.
Sustainability og nýting auðlinda verður einnig í brennidepli. Cheila Almeida frá Portúgal flytur erindið “What makes seafood sustainable? Moving beyond Life Cycle Assessment to assess fish from cellular agriculture, fisheries or aquaculture”, þar sem horft er út fyrir hefðbundið lífsferilsmat og borið saman sjávarfang úr veiðum, fiskeldi og frumurækt. Margrethe Esaiassen frá Nofima fjallar um mat á sjálfbærni í fiskvinnslu með samanburði á ferskum og söltuðum þorski.

