Matís tók við af Íslenskri erfðagreiningu að greina arfgerðarsýni sauðfjár nú um áramótin.
Greiningar eru í fullum gangi og stendur vinna yfir við úrvinnslu sýna sem bárust fyrir og yfir hátíðarnar. Niðurstöður eru farnar að skila sér og má gera ráð fyrir að þær haldi áfram að berast með reglulegu millibili á næstu vikum.
Ráðgjafarmiðstöð Landbúnaðar er byrjuð að taka við niðurstöðum og mun halda áfram að lesa niðurstöður inn í Fjárvís um leið og þær berast.
Nánari upplýsingar um innlestur niðurstaðna hjá Ráðgjafarmiðstöð Landbúnaðar má nálgast hér: https://www.rml.is/is/starfsemi/frettir/innlestur-a-arfgerdargreiningum-fra-matis-er-hafinn.

