Matís á PISCes ráðstefnunni í Kanada

Davíð Gíslason, verkefnastjóri hjá Matís, og Marjolijn Rika Nijzigh, doktorsnemi, sóttu PISCes ráðstefnuna, sem haldin var í Háskólanum í Guelph í Ontario, Kanada í júní. Helstu áherslur PISCeS ráðstefnunnar í ár voru regluverk og staðlar, ný tækni á sviði umhverfis-erfðafræði, sýnatökusnið og eDNA-greiningar í ólíkum umhverfum. 

Á ráðstefnunni kynnti Marjolijn Rika Nijzigh PhD vinnuna sína í verkefninu BioProtect. Fyrirlesturinn bar yfirskriftina; “Implementation of environmental DNA into marine conservation practices: From monitoring biodiversity to systematic conservation planning.”  Þar fjallaði hún um hvernig eDNA getur stutt við verndun sjávar með því að færa áhersluna frá greiningu tegunda og vöktun líffræðilegs fjölbreytileika yfir í markvissari, gagnadrifna áætlanagerð.

Davíð Gíslason kynnti veggspjaldið: “Implementation of environmental DNA (eDNA) for biodiversity mapping, monitoring and invasive species detection.” Þar var sýnt hvernig eDNA getur nýst sem öflugt tæki til að öðlast betri skilning á viskerfum sjávar, styðja við kortlagningu líffræðilegs fjölbreytileika og bæta snemmgreiningu á ágengum tegundum.

Matís leiðir evrópuverkefnið BioProtect sem hefur það markmið að þróa aðferðafræði og tæknilegar lausnir til að auðvelda ákvarðanatöku um auðlindanýtingu eða verndun hafsvæða.

Matís leiðir einnig verkefnið VS-eDNA sem er styrkt af Atvinnuvegaráðuneytinu sem lítur að líffræðilegumfjölbreytileika hafsins umhverfis Ísland.

Scroll to Top