News

Matís undirritar viljayfirlýsingu við MBCRC frá Ástralíu

Í síðustu viku undirritaði Matís viljayfirlýsingu við Marine Bioproducts Cooperative Research Centre (MBCRC), sem markar upphaf að spennandi og mikilvægu samstarfi. MBCRC er áströlsk rannsóknar- og nýsköpunarmiðstöð sem áherslu á verðmætasköpun í tengslum við sjávarlíftækni. MBCRC er sjálfseignarstofnun sem sameinar yfir 70 samstarfsaðila úr háskóla- og atvinnulífi og hefur aðsetur í Adelaide, Suður-Ástralíu.

Oddur Már Gunnarsson forstjóri Matís og Mr Daniel Abrahams CEO Marine Bioproduct Cooperative Research Centre

Þessi viljayfirlýsing felur í sér skýra framtíðarsýn um að nýta þau fjölbreyttu tækifæri sem felast í vinnslu lífefna úr hafinu, með það að markmiði að efla bláa hagkerfið, stuðla að sjálfbærri þróun og skapa verðmæti til framtíðar.

Samstarfið byggir á fimm meginmarkmiðum:

  • að stuðla að miðlun þekkingar og vísindalegra nýjunga,
  • að vinna að sameiginlegri rannsóknar- og þróunarstarfsemi á sviði sjávarlíftækni og verðmætra afurða úr hafinu,
  • að hvetja til nýsköpunar og styðja við vöruþróun og markaðssetningu,
  • og að innleiða sjálfbærar aðferðir sem tryggja ábyrga nýtingu sjávarauðlinda.
EN