Út er komin skýrsla (working paper) á vegum Norrænu Ráðherranefndarinnar þar sem staða, þróun, tækifæri, áskoranir og framtíðarhorfur á sviði orkuskipta á norðurlöndunum er til umfjöllunar.
Það eru fáar þjóðir í heiminum í jafn góðri stöðu og norðurlöndin til að taka stór skref í átt að orkuskiptum í sjávarútvegi, en það eru jafnframt risa stórar áskoranir í vegi þess að svo geti orðið. Tæknilegar áskoranir, ófullnægjandi innviðir, hamlandi regluverk, hár kostnaður og vöntun á fjárhagslegum hvötum, brotakennd gagnasöfnun og aðgengi að gögnum eru á meðal þeirra þátta sem standa hvað helst í vegi frekari innleiðingar á lausnum er stuðla að orkuskiptum í sjávarútvegi.
The report can be accessed here, en fulltrúar Íslands við gerð skýrslunnar voru þeir Jónas R. Viðarsson frá Matís og Ólafur Ögmundarson frá Háskóla Íslands.