Matís leitar að metnaðarfullum og öflugum sérfræðingi til starfa á rannsóknastofu okkar í Reykjavík. Um er að ræða fjölbreytt og krefjandi starf á sviði matvælaörverufræði þar sem nákvæmni, fagmennska og samstarfshæfni eru lykilatriði.
Main tasks and responsibilities
- Framkvæmd almennra örverurannsókna með faggildum aðferðum, þ.m.t. undirbúningur sýna fyrir ræktun og greiningar örvera eftir ræktun.
- Færni-prófanir á sviði matvæla og lyfja.
- Innri samanburðarsýnaprófanir á matvælaörverum.
- Þátttaka í verkefnum sem heyra undir tilvísunarrannsóknir Matís.
- Rannsóknir á matarbornum sjúkdómsvöldum.
- Þátttaka í áframhaldandi þróun og uppbyggingu faglegrar áherslu í örverugreiningum.
Educational and qualification requirements
- Háskólamenntun í matvælafræði, lífeindafræði, líffræði eða skyldum greinum er skilyrði.
- Reynsla af rannsóknum og/eða mælingum er kostur.
- Jákvætt viðmót og lipurð í mannlegum samskiptum.
- Samstarfshæfni og sveigjanleiki.
- Sjálfstæð, skipulögð og nákvæm vinnubrögð.
- Frumkvæði og faglegur metnaður.
- Góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti.
- Góð almenn tölvukunnátta.
Employment rate is 100%. The person concerned will work at Matís' laboratory at Vínlandsleið 12, Reykjavík.
Hlutverk Matís er að efla samkeppnishæfni íslenskra afurða og atvinnulífs og tryggja matvælaöryggi, lýðheilsu og sjálfbæra nýtingu auðlinda. Hjá Matís starfar um 100 manna öflugur hópur starfsfólks sem vinnur að þessum markmiðum með rannsóknum, nýsköpun og þjónustu.
Applications must be accompanied by a detailed CV and cover letter.
Umsóknarfrestur er til og með 8 mars.
Upplýsingar veitir Elísabet Eik Guðmundsdóttir, fagstjóri örverumælinga, elisabet@matis.is, 662 5292.

