Airflow and energy analysis in geothermally heated conveyor drying of fishbone

Hér er tekin til skoðunar þurrkun fiskhryggja í færibandaþurrkara. Frumgerð þurrkarans var smíðuð árið 1981 eftir hönnun Sigurjóns Arasonar, en þurrkarinn nýtir jarðvarma til hitunar á lofti sem notað er til þurrkunarinnar. Litlar breytingar hafa verið gerðar a hönnun þurrkarans frá smiði frumgerðarinnar, aðrar en þær að stærð þurrkarans hefur verið sköluð upp til að auka afkastagetu. Tilgangur verkefnisins er að nota mælingar og aðferðir massa- og orkubókhalds til að auka skilning og þekkingu á virkni þurrkarans, svo bæði framleiðendur og notendur tækisins geti bætt sína framleiðsluvöru.

Mælingar eru gerðar á eiginleikum loftflæðis þurrkarans (flæði, þrýstingi, hita- og rakastigi) og vatnsinnihaldi afurðarinnar. Niðurstöður mælinga eru notaðar til að reikna helstu kennistærðir þurrkarans og fundið hefur verið að óvermin nýtni þurrkarans er 50,5%, hlutfallsleg hringrásun lofts er 64% og orkuþörf til að gufa upp hverju kílógrammi af vatni er 5500 kJ. Þá er heildar orkunotkun metin sem 919 kW fyrir framleiðslugetu sem samsvarar 800 kílógrömmum hráefnis á klukkustund. Niðurstöður benda til þess að nýtni loftflæðisins sé ábótavant hvað varðar þrýstifall og vatnsupptöku. Mælingar á vatnsinnihaldi vörunnar gefa til kynna að þurrkferlinu sé ekki rétt stýrt, verklagi sé ábótavant og tækifæri sé til þess að tvöfalda afköst.

Scroll to Top