Með vaxandi neyslu reynir heimurinn að sjá fyrir 7 milljörðum jarðabúa. Fiskeldi hefur verið hampað fyrir þann möguleika að mæta þeirri gríðarlegu aukningu sem hefur verið í neyslu sjávarfangs og hefur átt stóran þátt í því að fæða heiminn á undanförnum árum. Það heldur áfram að vaxa hraðast af öllum matvælaframleiðslugreinum og stendur fyrir 45,6% af allri fiskneyslu í heiminum árið 2011. Samkvæmt WWF er 1/3 hluti af öllum veiddum fiski unninn í fiskmjöl og lýsi sem notað er í stórum stíl við gerð fóðurs. Þetta setur sustainability villtra fiskistofna í hættu um leið og gagnrýni á umhverfisáhrif af fiskeldi fer vaxandi.
Þessi rannsókn notaðist við Vistferilsgreiningu (Life Cycle Assessment, LCA) til að mæla umhverfisáhrif af 1 kg af lifandi bleikju, sem ræktuð er í íslenskri landeldisstöð. Aðgerðareiningin innihélt mat á þremur mismunandi gerðum af fóðri; Conventional fóður, ECO fóður og Black soldier fly fóður. Niðurstöður rannsóknarinnar benda til þess að fóðurframleiðslan veldur mestum umhverfisáhrifum með öllum fóðurgerðum, en Black soldier fly fóðrið olli minnstum áhrifum. Með því að auka innihaldsefni í fóðri úr plönturíkinu á kostnað sjávarafurða má lækka umhverfisáhrif töluvert. Þessi rannsókn leiddi einnig í ljós að flutningur á hráefni sem notaður er í fiskeldisferlinu, þar með talið hráefni í fóður, hefur mjög lítil umhverfisáhrif miðað við aðra ferla. Flutningur með flugi veldur gríðarlegum umhverfisáhrifum miðað við sjóflutning. Þessi rannsókn sýndi að framleiðsla á fóðri er gríðarlega mikilvægt ferli þegar talað er um umhverfisáhrif af fiskeldi. Hún sýndi jafnframt að með því að minnka það fóður sem fiskar borða, minnka hlutfall fiskimjöls og lýsis og jafnvel að gera nýtt fóður úr annarskonar lífrænum innihaldsefnum getur minnkað verulega umhverfisáhrif af fiskeldi.
