Heilsusamlegir ávaxtadrykkir með bætibakteríum og trefjum. Vöruþróun / Development of probiotic fruit drinks

Vinsældir markfæðis (functional food) hafa verið að aukast með hverju ári á heimsvísu og eru matvæli og drykkir með bætibakteríum (probiotics) með þeim vinsælustu. Á síðustu árum hafa matvælafyrirtæki víða um heim hafið framleiðslu á drykkjum með bætibakteríum sem eru án mjólkur en á Íslandi er enga slíka framleiðslu að finna og einungis er hægt að fá mjólkurvörur með bætibakteríum enn sem komið er. Fjölmargar rannsóknir hafa verið birtar síðustu árin sem sýna gagnsemi bætibaktería á heilsu manna. Með nýrri tækni hafa fyrirtæki náð að þróa sterkari stofna bætibaktería sem lifa betur í öðrum matvælum en mjólkurvörum. Markmið verkefnisins var að þróa frískandi og heilsusamlega drykki með bætibakteríum og trefjum sem hentar öllum aldurshópum, fyrir þá sem vilja bæta almenna heilsu sína og einnig fyrir þá sem ekki vilja eða ekki geta neytt mjólkurvara. Einungis er hægt að fá mjólkurvörur með bætibakteríum á Íslandi enn sem komið er. Tilgangur þess að bæta við trefjum er tvíþættur; annars vegar fyrir betra jafnvægi í meltingarvegi og hins vegar sem fæði fyrir bætibakteríurnar í meltingarveginum og í drykknum en það er talið að trefjar muni gefa þeim aukinn stöðugleika.

Scroll to Top