Shelf life of fresh foal meat. Effects of packing in air-conditioned containers

Geymsluþol folaldakjöts hefur takmarkað verið rannsakað en vegna hás hlutfalls ómettaðra fitusýra og litarefnisins vöðvarauða í vöðvum er folaldakjöt viðkvæmara fyrir oxun fitu og litabreytingum í geymslu en annað kjöt. Framleiðsla folaldakjöts hér á landi er árstíðabundin og því er mikilvægt að þekkja hvernig hægt er að varðveita gæði kjötsins sem best.

Meginmarkmið verkefnisins var að kanna áhrif umbúða, lofttegunda og kælingar á geymsluþol fersks folaldakjöts. Kjötinu var pakkað í loftskiptar umbúðir og þrjár mismunandi gasblöndur prófaðar, 100% koltvíoxíð (CO2), 50% koltvíoxíð (CO2) + 50% köfnunarefni (N2) og 25% koltvíoxíð (CO2) + 75% súrefni (O2). Kjötið var geymt við -1°C í allt að 8 vikur.

Eiginleikar og gæði folaldakjöts á geymslutímanum var metið með því að skoða styrkleika gastegunda í umbúðum, hitastig, sýrustig, efnainnhald (vatn, salt, prótein, kollagen og fitu), oxun fitu, áferð, suðuheldni, lit og vöxt örvera í kjötinu. Einnig var framkvæmt skynmat.

Niðurstöður sýna að folaldakjöt geymt við -1°C í loftskiptum umbúðum þar sem súrefni er ekki til staðar geymist vel í a.m.k. 8 vikur. Kjötið var öruggt til neyslu eftir 8 vikur, vöxtur örvera var langt undir viðmiðunarmörkum og hvorki bar á þránun né voru greinilegar breytingar á vatnsheldni við suðu, efnasamsetningu eða áferð á geymslutímanum. Litur folaldakjöts er mjög kvikur og háður umhverfisaðstæðum. Kjöt í súrefnissnauðum umbúðum dökknaði í sumum tilfellum mjög mikið á yfirborði en þegar nýskorið yfirborð komst í snertingu við andrúmsloft fékk það aftur eftirsóknarverðann rauðan kjötlit í öllum tilvikum.
Af því má álykta að pökkun folaldakjöts í loftskiptar umbúðir þar sem súrefni er útilokað sé öruggur og góður kostur til að geyma kjötið ferskt við kældar aðstæður t.d. við útflutning, en henti síður í smásölu vegna þess hve mikið kjötið dökknar.

Scroll to Top