Occurrence of different persistent organic pollutants in Atlantic cod (Gadus morhua L.) in Icelandic waters

Rannsóknir hafa sýnt að þrávirk lífræn efni geta haft margvísleg skaðleg áhrif á heilsu lífvera. Þau geta m.a. verið krabbameinsvaldandi, haft áhrif á hormónabúskap, taugakerfi og æxlunarfæri. Þrávirk lífræn efni brotna hægt niður í umhverfinu og í lífverum, þau eru afar fituleysin og magnast að styrk upp fæðukeðjuna og því er nauðsynlegt að fylgjast vel með efnunum í náttúrunni.

Helsta markmið verkefnisins var að meta magn og breytileika þrávirkra lífrænna efna í íslenska þorskinum (Gadus morhua) og hvort þættir eins og kyn, aldur, kynþroski, fiskimið, árstími, hefðu áhrif á magn efnanna. Einnig hvort þær mæliaðferðir sem þróaðar hafa verið á tækjabúnað Matís ohf. á Akureyri til mælinga á þrávirkum lífrænum efnum í fiskafurðum séu sambærilegar við þær aðferðir sem beitt er annarsstaðar.

Mæld voru nokkur þrávirk lífræn efni í holdi 64 þorska og lifrum 38 þeirra. Lítið magn þrávirkra lífrænna efna greindist í þorskinum og langt undir þeim mörkum sem leyfð eru. Magnið sem mældist í lifrunum var u.þ.b. 300 sinnum meira en í holdinu, þar sem efnin fylgja fitunni en þorskvöðvinn er afar fitulítill. Sú mæliaðferð sem notast var við stenst fullkomlega samanburð við þær aðferðir sem verið er að nota annarsstaðar, og virðist nýtanleg til að greina sömu efni í kjúklingi.

Full þörf er á frekari rannsóknum hvað varðar magn efnanna í öðrum tegundum sjávarlífvera sem og í lífverum sem fóðraðar eru á fiskafurðum og nýttar eru til manneldis.

Scroll to Top