Árstíða breytileiki þorsk- og ufsalifrar efna og eðliseiginleikar / Seasonal variation in cod and saithe liver chemical and physical properties

Alla tíð hafa fiskveiðar verið Íslendingum mikilvægar og þar á meðal þorsk- og ufsaveiðar. Fiskveiðar voru mikil búbót og ef illa áraði til búskapar í landi gátu landsmenn veitt sér til viðurværis. Þetta gerði landið byggilegra en verið hefði án hins gjöfula hafs. Lýsi úr þorsk- og ufsalifur var notað hér á árum áður sem ljósgjafi til að lýsa upp heimili og húsnæði. Á flestum heimilum var lýsistunna eða lýsisgryfja þar sem að lifur var geymd í meðan lýsið var að renna úr henni. Úr einni tunnu af lifur var hægt að fá 1/3 tunnu af sjálf runnu lýsi. Ekki er vitað nákvæmlega hvenær var farið að bræða lifrina til að ná lýsinu út, en elstu heimildir um lýsisbræðslu hér á landi eru síðan 1728 frá Grindavík. Lifrin var hituð upp í stálpottum og við það gufaði vatnið í lifrinni upp og lýsið flaut ofan á grútinum og síðan fleytt ofan af. Talsvert um reyk var við þetta og líklega mjög vonda lykt. Hræra varð stanslaust í pottinum meðan á bræðslu stóð. Þessari aðferð var beitt bæði til sjávar og sveita allt til 20 aldar.

Fiskur á hinum ýmsu veiðisvæðum mælist mislangur og þungur, ásamt því að lifrin í fiskinum er breytileg á þyngd eftir því á hvaða árstíma og á hvaða veiðisvæði fiskurinn er veiddur. Lifur fisksins skiptist í 3 hluta; stoðvef, fitu og vatn. Fituhlutfall lifrar er háð næringarástandi fisks. Þegar ástand fisks er mælt þá eru megin þættir mældir s.s. holdastuðull, prótein, raki, fita og aska. Þessar mælingar eru nauðsynlegar til að meta næringarástand fisksins. Þær geta verið mjög breytilegar frá einu sjávarsvæði til annars og verið háðar árstíðum og fæðuframboði sjávar.

Í þessari ritgerð er bæði verið að skoða hvort stærð fisks hafi áhrif á hvaða lýsi komi úr lifrinni (þyngdarsýni) og eins árstíðabundnar breytingar á lýsinu eftir því á hvaða árstíma fiskurinn er veiddur (staðalsýni). Í staðalsýnunum voru teknar fimm lifrar úr fiskum sem voru 2,5-3.0 kg. Lifrarnar voru vigtaðar stakar, myndaðar og síðan hakkaðar saman og gerð samfelld blanda sem var unnin áfram í hitun. Staðalsýnin voru mæld á sama tíma í hverjum mánuði. Þetta var gert til að sjá hvort að það væru einhverjar árstíðarbundnar breytingar á lýsinu í lifrinni. Þegar þyngdarsýni voru tekin voru gerðar prófanir tvisvar sinnum á bæði ufsa- og þorskalifur, til að skoða hvort að það væri einhver munur lýsismagni eftir því hvað fiskurinn sem lifrin kom úr var þungur. Mælingarnar voru gerðar í september/október 2014 og í febrúar 2015. Notaðir voru 3 þyngdarflokkar þar sem teknar voru fimm lifrar úr fiskum sem voru á bilinu 2-4 kg, aðrar fimm úr fiskum sem voru 4-6 kg og síðan fimm lifrar úr fiskum sem voru 6-9 kg. Fiskurinn var vigtaður og lengdarmældur á sjónum og eins voru lifrarnar vigtaðar sér. Síðan voru lifrarnar unnar og geymdar eins og staðalsýnin þar til í land kom. Í landi voru lifrarnar vigtaðar af Matís og þar voru einnig teknar myndir af þeim, þær hakkaðar og settar hver um sig í sér bikarglas til frekari vinnslu. Lifrarnar voru svo unnar eins og staðalsýnin, sett í hitun og í skilvindu.

Fiskurinn var veiddur á mismunandi veiðisvæðum kringum landið á mismunandi tíma. Því má gera ráð fyrir að fiskurinn sé að borða mismunandi fæði eftir því á hvaða veiðislóðum hann er veiddur.

Í bæði staðalsýnum og þyngdarsýnum voru gerðar A, D og E vítamínmælingar ásamt EPA og DHA fitusýrumælingum. Einnig voru gerðar mælingar á ósápanleg efni, joðtölu, brotstuðli, vatni, próteini og fitu. Þá var holdastuðull, lifrarstuðull og hlutfallsleg fita í lifur rannsökuð. Allar þessar mælingar voru skoðaðar á ársgrundvelli í staðalsýnunum til að sjá hvort mikil breyting væri á lýsinu eftir því hvenær árs hann var veiddur. Einnig voru þær skoðaðar í þyngdarsýnunum til að skoða hvort að skiftir máli af hvaða stærð af fiski vari verið að nota. Af staðalsýnunum sem tekin voru í hverjum mánuði var klárlega hægt að sjá að það skiptir máli á hvaða tímabili ársins fiskurinn er veiddur og á hvaða fæðu hann nærðist. Á þyngdarsýnum var marktækur munur á milli stærð af fiskum í nokkurm mælingum. Þetta átti bæði við um þorskinn og ufsann.

Scroll to Top