Í gegnum tíðina hefur framboð á fiski ráðið undantekningarlítið verði á fiskmörkuðum. Aðstæður á fiskmörkuðum hafa breyst mikið í gegnum árin og þrátt fyrir bætta starfshætti og tillögur til þess að tengja betur verð og gæði, þá er staðreyndin sú að enn þann dag í dag hefur framboð úrslitaáhrif á verðmyndun. Með tilkomu nýs tölvukerfis sem Reiknistofa fiskmarkaða hf. tók í notkun á árinu 2012 verður hægt að geyma og birta ýmsar upplýsingar sem áður var ekki mögulegt.
Markmið þessa verkefnis er að koma auga á og greina þær upplýsingar og þjónustuþætti sem mikilvægastir eru fyrir hagsmunaaðila í viðskiptum við fiskmarkaði. Við vinnslu verkefnisins var framkvæmd þarfagreining á mismunandi hagsmunahópum, lög og reglugerðir þessarar starfsemi skoðuð ásamt því að úttekt var gerð á starfsstöðvum tveggja fiskmarkaða. Upplýsingum var aflað með gerð viðhorfskönnunar, viðtölum við útvalda hagsmunaaðila, úttektir og lestur laga og reglugerða. Upplýsingarnar voru því næst greindar og lagt mat á þær þarfir sem komu fram. Að lokum var þarfagreiningin sett fram þar sem hægt er að sjá hvaða þarfir eru til staðar og hvort þær er uppfylltar eða ekki.
Niðurstöður sýna að fiskmarkaðir hafa lagt mikla vinnu í að sinna starfsemi sinni vel en meira þarf ef duga skal. Niðurstaða þarfagreiningarinnar sýnir meðal annars hvar er þörf á betrumbótum og liggur til grundvallar tillögum að úrbótum sem auka verðmæti og hagræði fyrir útgerðir, fiskverkendur, smásala, eftirlitsaðila og aðra sem skyldum hafa að gegna og hagsmunum að gæta gagnvart verðmætasköpun í sjávarútvegi á Íslandi.
