Hitastýring við sjóflutning fersks fisks í kæligámum / Temperature control during containerised sea transport of fresh fish

Ófullnægjandi hitastýring í kælikeðju hefur neikvæð áhrif á gæði og geymsluþol ferskra fiskafurða. Undanfarin ár hafa sjóflutningar kældra fiskafurða aukist á kostnað flugflutninga vegna betri hitastýringar í sjóflutningum og með frekari úrbótum má búast við að framleiðendur nýti sér hagkvæmari flutningamáta í auknum mæli. Markmið þessa verkefnis var að greina hitastýringu við sjóflutning á kældum fiskafurðum. Hitadreifing í kæligámum var kortlögð við staðbundnar aðstæður og lagt mat á áhrif mismunandi uppröðunar bretta, tegunda kæligáma og árstíða. Einnig var hitastýring í raunverulegum sjóflutningi rannsökuð.

Niðurstöður benda til þess að þörf sé á endurbótum í sjóflutningskeðjum. Sýnt var fram á mikilvægi verklags við hleðslu kæligáma og meðhöndlun þeirra frá framleiðanda til kaupanda. Hitastýringu við sjóflutninga má bæta með því að velja markhitastig og kæligáma sem hæfa best til flutninga ferskra fiskafurða. Kortlagning á hitadreifingu kæligáma sýndi fram á breytileika, bæði í flutningsferlinu og með tilliti til staðsetningar innan gámsins, og leiðir hún líkur að því að jafna megi hitadreifingu með því að þvinga loftflæði innan gámsins og breyta verklagi við uppröðun bretta.

Scroll to Top