Matís býður aðilum í kjötframleiðslu og kjötiðnaði til samtals!
- Hvernig getur Matís komið að liði við að sýna fram á sérstöðu, stuðla að dýravelferð, tryggja öryggi, auka gæði, verðmæti og minnka sóun í íslenskri kjötframleiðslu og iðnaði?
- Hvernig getur Matís orðið að liði í þeim áskorunum sem felast í aukinni samkeppni, umhverfismálum og viðhorfum neytenda?
- Hvar liggur sérfræðiþekking Matís og hvernig geta starfsfólk og innviðir fyrirtækisins nýst innlendri kjötframleiðslu og kjötiðnaði á næstu árum?
Við erum til þjónustu reiðubúin.
Innan Matís starfa sérfræðingar á mörgum sviðum. Fyrirtækið hefur yfir að ráða aðstöðu til efna- og örverumælinga, skynmats, framleiðslu- og geymsluþolstilrauna. Sérfræðingar Matís hafa áratuga reynslu af alls konar rannsókna-, þróunar- og fræðsluverkefnum. Verkefnin hafa verið unnin í nánu samstarfi við búgreinafélög, sláturhús, kjötvinnslur, smáframleiðendur og menntastofnanir í landinu.
Dæmi um árangursríkt samstarfs:
- Íslenska gagnagrunninn um efnasamsetningu matvæla. Kjötbókina. Matís online námskeið um vinnslu á kindakjöti
Og verkefni um:
- erfðamælingar. Uppruni. Kynbætur.
- örverur. Smitrakning
- dýravelferð. Þ.e. sláturlamba og galtargrísa
- kælingu og geymsluþol á kjöti
- sérstöðu afurða. Næringargildi. Bragð og beitarhagar.
- viðhorf næstu kynslóðar neytenda. Krakkar kokka. We value food
- stuðning við smáframleiðslu á kjöti. t.d. við stofnun á handverkssláturhúsum
Matís er einnig í verkefnum sem snúa að því hvernig matvælaiðnaður getur brugðist við áskorunum framtíðararinnar:
- Mun sérfræðiþekking í vinnslueiginleikum kjöts og fagþekking í kjötiðnaði nýtast við framleiðslu á kjötlausum vörum. ”Eftirlíkinum”? Mun íslenskur kjötiðnaður taka þátt í þeirri þróun? Nextgen prótein.
- Hvernig þjálfum við ung fagfólk í að verða frumkvöðlar og stunda nýsköpun til að mynda í kjötiðnaði. EIT Food Inspire.
- Hvað með erfðir (erfðamengjaúrval)? og umhverfismál (Nýting hliðarafurða, Vistspor)?
Dagskrá fundar
- Yfirlit um verkefni um rannsóknum og nýsköpun sem tengjast kjöti. Guðjón Þorkelsson og Óli Þór Hilmarsson
- Skynmat og neytendarannsóknir. Bragð og beitarhagar. Kolbrún Sveinsdóttir og Aðalheiður Ólafsdóttir
- Erfðarannsóknir og kjötframleiðsla. Sæmundur Sveinsson
- Viðhorf kjötvinnslufyrirtækja. Norðlenska. Bára Eyfjörð Heimisdóttir
- Viðhorf kjötvinnslufyrirtækja Benedikt Benediktsson. Sláturfélag Suðurlands
- Umræður
Fundurinn verður haldinn þann 26. maí frá kl. 9:00 – 10:00. Hér að neðan má sjá upptöku af fundinum.
Hér er hlekkur á viðburðarsíðu fundarins á facebook.
Þessi viðburður er hluti af áherslufundaröð sem haldin er í kjölfar ársfundar til þess að gefa frekari innsýn í starfsemi Matís sem veitir mismunandi geirum og greinum atvinnulífsins stuðning.