Norrænt samstarf um matargerðarlist, skynmat og prótein framtíðar (NGSN)

NGSN er norrænt samstarfsverkefni sem styrkir tengsl milli matargerðarlistar, skynmatsvísinda og sjálfbærra matvælakerfa. Verkefnið byggir á þeirri sýn að breytingar í átt að sjálfbærari próteingjöfum þurfi ekki aðeins að byggjast á næringarfræði og umhverfissjónarmiðum, heldur einnig á bragði, upplifun og ánægju neytenda.

Matvælakerfi heims standa frammi fyrir auknum áskorunum vegna loftlagsbreytinga, landnýtingar, lífræðilegrar fjölbreytni og lýðheilsu. Því er nauðsynlegt að draga úr neyslu dýraafurða og auka hlut jurtaafurða í fæðuvali. Til að slík breyting nái fram að ganga þarf maturinn einnig að uppfylla væntingar um bragð, áferð og matarmenningu.

NGSN sameinar sérfræðiþekkingu á sviði skynmats, neytendarannsókna, næringarfræði, vöruþróunar og matargerðarlistar. Markmiðið er að efla norræna getu til að styðja við breytingar í átt að meiri sjálfbærni og lýðheilsu.

Verkefnastjórn er í höndum University of Helsinki, sem er leiðandi háskóli á Norðurlöndum með sterka stöðu í matvælafræði, næringarfræði og rannsóknum á sjálfbærum matvælakerfum.

Scroll to Top