Áhrif lambabeinaseyðis á heilsu og þarmaflóru

Þrátt fyrir vaxandi áhuga á beinaseyði sem næringarvöru liggur takmörkuð vísindaleg þekking fyrir um áhrif þess á þarmaflóru og almenna heilsu. Markmið verkefnisins Áhrif lambabeinaseyðis á heilsu og þarmaflóru er að rannsaka áhrif reglulegrar neyslu lambabeinaseyðis á samsetningu þarmaflóru og valda heilsufarsþætti hjá konum á aldrinum 35–55 ára. 

Bein úr íslenskri kjötframleiðslu eru verðmætt hráefni sem hefur hingað til verið vannýtt en felur í sér mikla möguleika til verðmætasköpunar í hringrásarhagkerfinu.

Verkefnið mun skapa nýja þekkingu á samsetningu, eiginleikum og mögulegum heilsufarsáhrifum lambabeinaseyðis, auk þess að varpa ljósi á tækifæri til aukinnar nýtingar og verðmætasköpunar úr þessu innlenda hráefni.

Verkefnið er styrkt af Matvælasjóði og er samstarfsverkefni Matís, Háskóla Íslands og fyrirtækisins Bone & Marrow sem framleiðir beinaseyðið.

Mynd: Canva.com

Scroll to Top