Matís hefur fengið staðfestingu frá SWEDAC á nýjum faggildingum á þremur mikilvægum greiningum. Um er að ræða flúormælingar í vatni á efnadeild í Reykjavík, auk PCR-greininga á Salmonellu og Listeria monocytogenes í fiski á örverudeild í Neskaupstað.
Faggildingin er skýr viðurkenning á öflugri fagþekkingu og vönduðum vinnubrögðum starfsfólks Matís. Starfsfólk og faglegir sérfræðingar rannsóknarstofanna hafa markvisst unnið að því að bæta þessum greiningum inn undir faggildingu Matís og tryggja þannig að þær standist strangar alþjóðlegar kröfur um gæði og áreiðanleika samkvæmt ISO 17025 staðlinum.
Nýju PCR-greiningarnar í Neskaupstað eru einstaklega ánægjulegar, þar sem þær svara beint þörfum viðskiptavina á Austurlandi og styðja við hraða og örugga þjónustu í heimabyggð. Jafnframt marka flúormælingarnar mikilvægt skref í áframhaldandi uppbyggingu á sviði umhverfisvöktunar hjá Matís.
Þessar faggildingar endurspegla styrk Matís í að bregðast hratt og faglega við þörfum viðskiptavina. Sem leiðandi þjónustuaðili á Íslandi leggur Matís áherslu á að veita sveigjanlega og áreiðanlega þjónustu fyrir fyrirtæki og stofnanir í matvælaframleiðslu, umhverfisvöktun og eftirliti af ýmsu tagi, þar sem mikilvægt er að þessir aðilar geti sótt í faglega og viðurkennda þjónustu innanlands.

