Vinningshafi teiknisamkeppni barna á Vísindavökunni

Vísindavakan fór fram í Laugardalshöll laugardaginn 26. september síðastliðinn og var þar að vanda fjölbreytt dagskrá fyrir gesti á öllum aldri. Matís tók þátt með bás þar sem gestir gátu kynnt sér rannsóknaverkefnin MarineGuardian and BioProtect.

Í bás Matís fengu gestir að kynnast MarineGuardian verkefninu, sem snýst um þróun veiða og veiðarfæra sem draga úr umhverfisáhrifum fiskveiða. Þar var hægt að horfa á 3D-myndbönd og skoða nýjar lausnir sem geta stuðlað að sjálfbærari fiskveiðum.

Í tengslum við BioProtect verkefnið var efnt til teiknisamkeppni fyrir börn og þau voru hvött til að teikna veru sem gæti hjálpað til við að vernda hafið. Fjölmargar litríkar, skemmtilegar og hugmyndaríkar teikningar bárust. Teikningarnar voru hengdar upp á göngum Matís þar sem starfsfólk fékk tækifæri til að kjósa sína uppáhalds mynd. Í vinning var myndavélasmásjá og verður vinningsmyndin birt í myndasögu BioProtect verkefnisins.

Í fyrsta sæti var þessi fína mynd eftir Helgu Maríu Bóasdóttir, sem er 12 ára. Á myndini má sjá hjálpsömu veruna Dropa og snigilinn Sædísi. En Dropi vill hreinsa og vernda vistkerfi hafsins.

Við þökkum öllum börnunum sem tóku þátt og öllum þeim fjölmörgu sem heimsóttu bás Matís á Vísindavökunni.

Scroll to Top