Arfgerðagreiningar sem meta þol sauðfjár gegn riðu eru nú framkvæmdar hjá Matís, samkvæmt samningi við Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins (RML).
Erfðahópur Matís hefur um árabil arfgerðagreint búfénað, meðal annars í tengslum við erfðir sem hafa áhrif á frjósemi, vegna erfðagalla og faðernisgreininga. Umfang þeirra greininga sem nú eru hafnar í tengslum við þol gegn riðu eru hins vegar mun umfangsmeiri, en næstu árin er gert ráð fyrir greiningu á um 70–80 þúsund sýnum.
Greiningarferlið byggir á DNA raðgreiningu: DNA er einangrað úr lífsýnum, tiltekið svæði PRNP-gensins magnað með PCR og síðan raðgreint. Að lokum fara sérfræðingar Matís yfir niðurstöðurnar, staðfesta gæði gagnanna og senda niðurstöður til RML þar sem þær eru skráðar í Fjárvís.
Samhliða þessari þjónustu býður Matís einnig upp á fleiri arfgerðagreiningar fyrir sauðfjárrækt – í tengslum við bógkreppu og frjósemis-breytileikana Lóu og Þoku. Með auknu umfangi verkefnisins skapast hagkvæmari rekstur sem hefur leitt til hagstæðari verða en áður á greiningunum.
Með þessari uppbyggingu styrkir Matís enn frekar hlutverk sitt á sviði erfðagreininga og rannsóknarþjónustu fyrir íslenskan landbúnað og leggur sitt af mörkum til ræktunarstarfs og baráttunnar gegn riðu í íslensku sauðfé.

