Útbreiðsla sjávarspendýra í Norður-Atlantshafi og áhrif þeirra á vistkerfi og sjávarútveg

Jónas Rúnar Viðarsson

Director of the Division of Research & Innovation


jonas@matis.is

Sjávarspendýr éta árlega milljónir tonna af lífmassa í Norður-Atlantshafi en áhrif þeirra á vistkerfi og nytjastofna eru enn að miklu leyti óþekkt. Matís og Hafrannsóknastofnun stóðu nýverið fyrir tveimur fundum þar sem vísindamenn og hagaðilar ræddu stöðu þekkingar og þörfina fyrir frekari rannsóknir.

Fyrri fundurinn var vinnufundur sem haldinn var hjá Matís 4. nóvember, þar sem um tuttugu manns komu saman, en í hópunum voru vísindamenn sem og bæði hvalveiðisinnar og hvalaverndarsinnar. Daginn eftir var haldin málstofa í tengslum við Sjávarútvegsráðstefnuna, þar sem fluttar voru níu kynningar. Þar töluðu sérfræðingar í sjávarspendýrum frá Nýfundnalandi, Íslandi, Færeyjum, Danmörku og Noregi, auk fulltrúa hvalaverndarsinna og þeirra sem vilja nýta sjávarspendýr.

Fundirnir eru hluti af verkefni sem Jónas R. Viðarsson, sviðsstjóri rannsókna og nýsköpunar hjá Matís, stýrir með stuðningi Norrænu ráðherranefndarinnar og Verkefnasjóðs sjávarútvegsins. Markmiðið er að efla samtal vísindamanna og hagaðila, miðla fyrirliggjandi rannsóknum og bæta aðgengi að gögnum.

Matís og Hafrannsóknastofnun stóðu nýverið fyrir tveimur fundum þar sem vísindamenn og hagaðilar ræddu stöðu þekkingar og þörfina fyrir frekari rannsóknir.

Sjávarspendýr éta 6,5 milljónir tonna árlega við Ísland

Samkvæmt nýlegu vistkerfisyfirliti Alþjóðahafrannsóknaráðsins (ICES) er áætlað að sjávarspendýr éti um 6,5 milljónir tonna af lífmassa árlega á íslenska hafsvæðinu. Til samanburðar nemur árlegur sjávarafli Íslendinga rúmlega einni milljón tonna. Stór hluti fæðu sjávarspendýra er þó svif og áta fremur en nytjafiskar.

Áætlað er að sjávarspendýr í Norður-Atlantshafi og Norður-Íshafi éti samtals um 200 milljónir tonna af lífmassa á ári, á meðan fiskveiðar á svæðinu nema um 10 milljónum tonna. Enn skortir hins vegar þekkingu til að meta með áreiðanlegum hætti hvaða áhrif þessi fæðuneysla hefur á nytjastofna og vistkerfi sjávar.

Takmörkuð gögn um stofnstærðir og áhrif

Ein helsta áskorunin er skortur á nýlegum upplýsingum um fjölda og útbreiðslu sjávarspendýra. Hvalatalningar fara að jafnaði fram á um tíu ára fresti og úrvinnsla þeirra getur tekið mörg ár. Niðurstöður alþjóðlegra talninga frá sumrinu 2024 liggja enn ekki fyrir.

Eldri rannsóknir benda til verulegrar fjölgunar sumra hvalategunda við Ísland. Þannig fjölgaði hnúfubökum úr um 1.800 í 11.600 á árunum 1987–2007 og langreyðum úr 5.500 í 36.800 á árunum 1987–2015.

Jafnframt gegna hvalir mikilvægu hlutverki í vistkerfi sjávar, meðal annars með því að flytja næringarefni úr djúpsjó upp í efri sjávarlög og stuðla að hringrás næringarefna og kolefnisbindingu. Umfang þessara áhrifa er þó enn óljóst.

Aukið samtal og miðlun vísindalegrar þekkingar

Á næstu mánuðum verða haldnir fundir með hagaðilum í Vestmannaeyjum og Neskaupstað, auk sambærilegra funda á Nýfundnalandi, í Færeyjum og Noregi.

Með verkefninu er stefnt að því að skapa sameiginlegan þekkingargrunn, greina hvar frekari rannsókna er þörf og stuðla að upplýstri umræðu um hlutverk sjávarspendýra í vistkerfum Norður-Atlantshafsins.

Forsíðumynd: Todd Cravens

Scroll to Top