Landinn á RÚV sýndi nýlega innslag frá verkefni þar sem prófað var að búa til blóðmör úr laxablóði. Verkefnið „Verðmætasköpun úr laxablóði“ er samstarfsverkefni Matís, Háskólans á Akureyri, Háskóla Íslands, Slippsins á Akureyri og Samherja fiskeldis.
Í verkefninu var leitast við að leita leiða til að skapa verðmæti og þróa afurðir úr vannýttu hráefni, laxablóði. Við vöruþróun í rannsóknarverkefninu var megin áhersla lögð á járnríkt fæðubótarefni til manneldis og einnig voru prófaðar aðrar þekktar blóðafurðir eins og fram kemur í Landanum. Blóðmör úr laxablóði og laxalifur kom ágætlega út úr skynmati í samanburði við hefðbundna blóðmör og ekki fannst mikill munur á afurðunum.
Á meðfylgjandi myndum eru Rannveig Björnsdóttir prófessor við Auðlindadeild HA og Sæmundur Elíasson lektor við Auðlindadeild HA í Landanum að segja frá tilraunaverkefninu í Landanum á RÚV, þar sem þau skoða hvort hægt sé að búa til verðmæti úr laxablóði.

Myndir frá Háskólanum á Akureyri






