Meginmarkmið verkefnisins er að framkvæma forklínískar rannsóknir á nýstárlegri lýsisafurð (OmegaCold FFA) sem gæti dregið úr líkum á og/eða linað áhrif öndunarfærasýkinga, sérstaklega „kvefs“.
Fengnir verða samtals 400 sjálfboðaliðar til að taka þátt í forklíniskri rannsókn þar sem helmingur sjálfboðaliða taka Omega Cold FFA, en hinir ekki. Þátttakendur skrá líðan sína daglega með skipulegum hætti. Að gefnu að niðurstöðurnar verði jákvæðar, er stefnt skráningu vörunnar sem „lækningatæki“ (Medical Device).
