Verkefnið snýr að þróun nýrrar afurðar úr fjörugrösum (e. sea moss) í formi gels. Fjörugrös eru rauðþörungar sem hafa lengi verið nýttir sem fæðubótarefni og í hefðbundnum lækningum víða um heim. Þau eru rík af steinefnum, trefjum og ýmsum lífvirkum efnum. Á undanförnum árum hefur eftirspurn eftir fjörugrasagelum aukist og varan verið markaðssett sem náttúrulegt fæðubótarefni sem styður við meltingu, ónæmiskerfi og almenna vellíðan.
Markmið verkefnisins er að þróa fjörugrasagel á Íslandi sem uppfyllir kröfur um matvælaöryggi, gæði og geymsluþol og hentar til sölu í verslunum. Stefnt er að því að skapa fullunna, markaðshæfa vöru sem getur orðið grunnur að nýrri vörulínu Arctic Algae og stuðlað að aukinni innlendri verðmætasköpun á sviði fæðubótarefna.

