Við slátrun á eldislaxi er fiskinum látið blæða í vatni eða sjó sem fer yfirleitt ómeðhöndlað út í fráveitukerfi. Við blæðingu skolast út blóðmagn sem telur um 2% af þyngd fisksins. Árið 2021 var 50.000 tonnum af eldislaxi slátrað á Íslandi og má því leiða líkum að því að það ár hafi íslensk laxasláturhús skolað um 1.000 tonnum af laxablóði út í umhverfið. Rannsóknir sýna að safna mætti stórum hluta af blóði fisksins með þurrblæðingu án þess að það hafi neikvæð áhrif á gæði flakaafurða.
Verkefnið snýst um að þróa verðmætar afurðir úr laxablóði en í því er m.a. að finna verðmæt prótein, járn, vítamín, steinefni og fleira, auk þess sem kanna þarf nánar eftirsóknarverða lífvirkni valinna þátta.
Væntar niðurstöður verkefnisins eru 3-5 valdar, nýjar vörur unnar úr laxablóði, annars vegar nýjar vörur sem valdar verða byggt á verðmæti innihaldsefna og tækifærum sem gætu verið fyrir slíkar vörur á markaði, og hinsvegar prófun framleiðsluferla, proof of concept, á þekktum vörum sem nú eru unnar úr laxablóði og eða blóði annarra dýra.
Markmið verkefnisins er þannig að skapa verðmæti úr ónýttri hliðarafurð sem fellur til í ört vaxandi magni ef framleiðsluáform fiskeldis í landinu ganga eftir.
Megin ávinningur verkefnisins liggur í upplýsingum um tækifæri til nýtingar á auðlind sem tapast alfarið úr vinnslu og út í umhverfið eins og staðan er í dag. Þær upplýsingar munu, ásamt niðurstöðum úr vinnu annarra verkefna er snúa að hönnun og smíði lausna við tæknilega framkvæmd þurrblæðingar, skapa ný verðmæti með aukinni nýtingu lífauðlindarinnar og minnka lífræn efni sem tapast út í umhverfið og þannig minnka enn fremur umhverfisáhrif laxeldis.
