Utilization of by-products from animal husbandry in insect feed

Markmið verkefnisins var að kanna möguleika á að nýta hliðarafurðir úr íslenskri ylrækt sem fóður fyrir mjölorma (Tenebrio molitor). Framkvæmdar voru fóðurtilraunir þar sem mjölormar fengu hveiti ásamt gulrótum sem viðmiðunarfóður, hveiti ásamt gúrkublöðum eða hveiti ásamt tómatblöðum. Jafnframt voru framkvæmdar mælingar á næringargildi, glýkóalkalóíðum, þungmálmum og öðrum snefilefnum, varnarefnaleifum og örverum í fóðri og frostþurrkuðum lirfum. Niðurstöðurnar sýndu að fóðurtegund hafði greinileg áhrif á vöxt, lifun og frjósemi mjölormanna. Gúrkublöð reyndust hagstæðasta hráefnið af þeim sem prófuð voru og gáfu meiri framleiðslu lirfa, betri vöxt og hærra próteinhlutfall í lokaafurð en viðmiðunarfóðrið. Tómatblöð reyndust hins vegar síður hentug, þar sem þau tengdust minni vexti, hærri dánartíðni og lægri frjósemi. Mælingar á glýkóalkalóíðum sýndu að α-tómatín var í háum styrk í tómatblöðum en í mun lægra magni í lirfum eftir uppskeru, sem bendir til þess að mjölormarnir geti brotið efnið niður að hluta, þó ekki að fullu. Varnarefnaleifar fundust ekki í sýnum og magn þungmálma var almennt lágt, þó kadmín í lirfum gefi tilefni til áframhaldandi eftirlits. Listeria monocytogenes and Salmonella greindust ekki í lokaafurð, en heildarfjöldi loftháðra örvera var yfir viðmiðunarmörkum í öllum sýnum. Niðurstöðurnar benda því til þess að gúrkublöð séu álitlegt hráefni í fóður fyrir mjölorma, en að ekki sé hægt að mæla með notkun tómatblaða við þær aðstæður sem rannsakaðar voru í verkefninu. Jafnframt er ljóst að frekari þróun á vinnslu, meðhöndlun og örveruöryggi er nauðsynleg áður en slík framleiðsla verður tekin upp á stærri skala.
_____
The aim of the project was to evaluate the potential of using by-products from Icelandic greenhouse horticulture as feed for yellow mealworms (Tenebrio molitor). Feeding trials were carried out using wheat supplemented with carrots as a reference feed, cucumber leaves, or tomato leaves. In addition, analyses were performed on nutritional composition, glycoalkaloids, heavy metals and other trace elements, pesticide residues, and microbiological quality in both feed materials and freeze-dried larvae. The results showed that feed type had a clear effect on mealworm growth, survival, and fertility. Cucumber leaves were the most promising raw material tested, resulting in higher larval production, better growth, and higher protein content in the final product than the reference feed. Tomato leaves were less suitable, being associated with reduced growth, higher mortality, and lower fertility. Glycoalkaloid analyses showed that α-tomatine was present at a high level in tomato leaves but at a much lower level in harvested larvae, indicating partial but incomplete degradation by the mealworms. No pesticide residues were detected, and heavy metal levels were generally low, although cadmium detected in the larvae indicates a need for continued monitoring. Listeria monocytogenes and Salmonella were not detected in the final product, whereas total aerobic counts were above reference limits in all samples. Overall, the findings indicate that cucumber leaves are a promising feed ingredient for mealworms, whereas tomato leaves cannot be recommended under the conditions tested in this project. Further work on processing, handling, and microbiological safety is needed before this type of production can be implemented on a larger scale.

Scroll to Top