Nýting stórþörunga í matvælaframleiðslu

Rósa Jónsdóttir

Research Group Leader

rosa.jonsdottir@matis.is

Nýlega kom út skýrslan “SEAWEEDS FOR FOOD: from production to consumer. A Nordic perspective on quality, processing and market advancement”. 

Skýrslan dregur saman helstu niðurstöður nýlegra rannsókna um nýtingu á stórþörungum í matvælaframleiðslu víðs vegar um Evrópu, sérstaklega í norrænu samhengi.  Aðallega er fjallað um rannsóknir á stórþörungunum beltisþara (Saccharina latissimi), marinkjarna (Alaria esculenta), sölvum (Palmaria palmata) og grænþörungum (Ulva spp).

Skýrslan tekur fyrir lykilatriði sem tengjast notkun stórþörunga í matvæli, þar á meðal næringu, matvælaöryggi, áhrif vinnslu á geymsluþol, næringargildi og skynræna eiginleika, viðhorf neytenda til matvæla sem innihalda stórþörunga og fullyrðingar um sjálfbærni.  

Skýrslan er ætluð matvælaframleiðendum, eftirlitsaðilum, vísindamönnum og öllum þeim sem hafa áhuga á rannsóknum, þróun og ræktun á þörungum. 

Dr. Pierrick Stévant hjá Møreforsking í Noregi leiddi þessa vinnu en að henni komu ýmsir aðilar frá Noregi, Danmörku, Svíþjóð, Íslandi og Færeyjum

Skýrsluna og nánari upplýsingar má finna hér: Seaweeds for food: from production to consumer

Scroll to Top