Markmið verkefnisins er að þróa nýja íslenska hágæðavöru sem sameinar fyrsta flokks saltfisk, vandaða hönnun og sögu íslenskrar saltfiskverkunar. Þróuð verður annars vegar gjafaaskja fyrir ferðamenn á Íslandi og hins vegar útgáfa ætluð erlendum sérvörumörkuðum sem “premium conservas”, – hágæða niðursoðnar sjávarafurðir í smærri skömmtum.
Verkefninu er stýrt af F-61 sem byggir verkefnið á reynslu fyrirtækisins af þróun gjafapakkningarinnar „Síldarævintýrið“, sem hefur náð góðri dreifingu um land allt og kynnt íslenska síldarsögu fyrir ferðamönnum. Verkefnið Bragð af arfleið byggir jafnframt að hluta til á niðurstöðum norræna verkefnisins Saltfiskkræsingar (https://matis.is/matis_projects/trendy-cod-saltfiskkraesingar/), en gengur skrefinu lengra með því að færa uppskriftir og þekkingu yfir í staðlaða, iðnaðarhæfa framleiðslu á útflutningshæfri niðursoðinni afurð. Markmiðið er að skapa nýjan vöruflokk fyrir íslenskan saltfisk og auka verðmæti hans með fullvinnslu og markvissri markaðsaðlögun.
Verkefnið er unnið í samstarfi F-61 s/f við Matís, Íslenskra saltfiskframleiðenda og Ajtel Iceland ehf, sem sameinar rannsóknir, vöruþróun, framleiðslu og markaðsþekkingu og skapar sterkan grunn fyrir nýja útflutningsafurð.




