Kolefnisspor íslenskra matvæla – Sjávarafurðir

Project title: Kolefnisspor íslenskra matvæla

Partners: Háskóli Íslands, EFLA verkfræðistofa, samstarf við SFS og fyrirtæki í greininni

Research Fund: Fisheries Project Fund

Service Category:

bottom fish

Contact

Birgir Örn Smárason

Research Group Leader

birgir@matis.is

Sjávarafurðir byggir upp samræmda, gagnsæja og samanburðarhæfa aðferð til að reikna kolefnisspor íslenskra sjávarafurða. Verkefnið nær yfir botn- og bolfisk (m.a. tog og lína) og uppsjávarafurðir og birtir niðurstöður opinberlega í ÍSGEM við hlið næringarupplýsinga. Aðferðafræðin mun fylgja alþjóðlegum stöðlum og styður bæði fyrirtæki, stjórnvöld og neytendur í markvissum loftslagsaðgerðum og stefnumótun.

Markmið:

  • Veita áreiðanlegar, gagnsæjar og samanburðarhæfar upplýsingar um kolefnisspor helstu sjávarafurða á Íslandi.
  • Móta heildstæða aðferð sem tekur mið af ISO 14040/44 og ISO 14067, PEF-leiðbeiningum ESB og EPD-venjum í matvælum.
  • Uppfæra ÍSGEM með kolefnissporgögnum fyrir sjávarafurðir.

Aðferð og umfang:

  • Söfnun gagna yfir alla virðiskeðju (veiðarfæri, orka/eldsneyti, hreinsiefni/vatn, aflabrögð, vinnslunýting, flutningar o.fl.).
  • Uppsetning LCI gagnagrunna og útreikningar í SimaPro, viðurkenndir LCA-gagnagrunnar (t.d. EcoInvent) þar sem þarf.
  • Næmnigreiningar og samanburðarlíkön í samstarfi Matís–HÍ–EFLU, SFS og fyrirtæki í greininni taka þátt í gagnasöfnun/ráðgjöf.

Afurðir og ávinningur:

  • Opnir gagnagrunnar og birtar niðurstöður um kolefnisspor sjávarafurða í ÍSGEM.
  • Samræmd íslensk aðferðafræði til áframhaldandi útreikninga og samanburðar (innanlands/erlendis).
  • Stoð fyrir stefnumótun, CSRD/ESRS-innleiðingu og umhverfisyfirlýsingar (EPD), forgangsröðun aðgerða í veiðum, vinnslu og dreifingu.