Verkefnið felur í sér að þróa tillögu að aðgreiningu og sérmerkingu fyrir íslenskt nautakjöt með það að markmiði að auka verðmæti framleiðslunnar og skapa stöðugleika í gæðum. Verkefnið byggir á samráði við hagaðila í virðiskeðjunni og miðar að því að móta skýr viðmið íslensks gæðastaðals. Verkefnið mun ná til bænda, sláturhúsa, kjötvinnslna og söluaðila og er ætlað að efla samkeppnishæfni íslensks nautakjöts.
Markmið verkefnis: Að þróa tillögu að aðgreiningu á íslensku nautakjöti og skilgreina sérmerkingu byggða á gæðaeiginleikum til að auka verðmæti framleiðslunnar.
Lögð verður áhersla á að sérmerkingin svari kalli neytenda sem gera kröfur um ákveðna og einsleita gæðaeiginleika og greiða þannig leið íslensk nautakjöts inn á sérmarkaði. Þannig muni sérmerking nýtast í ráðgjöf til bænda og veita þeim upplýsingar fyrir ræktunarstarf.
Lokaafurð verkefnisins verður tillaga að sérmerkingarkerfi sem byggir á gæðastaðli fyrir íslenskt nautakjöt. Staðallinn mun nýtast til að auka verðmæti íslensks nautakjöts, efla samkeppnisfærni þess á sérmörkuðum, tryggja neytendum upplýsingar um uppruna og stöðug gæði.
