Bioactive Compounds

Lífefni í íslenskri náttúru eru fjölbreytt og oft gædd einstökum eiginleikum sem hægt er að nýta til að auka virði afurða og efla lýðheilsu. 

Lífefnahópur Matís sinnir margvíslegum rannsóknar- og vöruþróunarverkefnum sem snúa að nýtingu lífefna meðal annars í matvæli, fæðubótarefni og snyrtivörur. Áhersla hefur verið lögð á rannsóknir á próteinum, sykrum, lípíðum og lífvirkum efnum. Markmiðið er að stuðla að nýsköpun, þróa markaðshæfar vörur og styðja við sjálfbæra nýtingu auðlinda til sjávar og sveita. Verkefnin eru unnin í nánu samstarfi við frumkvöðla, fyrirtæki, rannsóknastofnanir og háskóla, bæði innanlands og erlendis. 

Ferlið frá hugmynd að nýtingu lífefna og lífvirkra efna í markaðshæfa vöru getur verið mismunandi en markmiðið er ávallt að tryggja öryggi og gæði afurðanna og að tilætluð virkni og eiginleikar séu til staðar. Liður í starfi faghópsins er að bjóða margvíslega þjónustu við vöruþróun nýrra afurða í nánu samstarfi við aðra faghópa á Matís.  

  • Bioactivity measurements
  • Processing properties
  • Microbiological Analysis 
  • Chemical composition
  • Stability tests
  • Product food
  • Sensory Evaluation 
  • Interventional research
  • Neytendarannsóknir – viðhorf, næring og heilsa

Rannsóknir á próteinum hafa verið stundaðar á Matís um árabil. Aðaláhersla hefur verið á nýtingu próteina úr hliðarhráefnum frá fiskvinnslu, svo sem afskurði og roði. Þessar rannsóknir eru enn veigamikill þáttur í starfseminni, en áherslan hefur jafnframt færst í meira mæli en áður yfir á hliðarafurðir úr fiskeldi og kjötvinnslu. Undanfarin ár hefur einnig verið lögð áhersla á svokölluð nýprótein, til dæmis úr skordýrum, grasi og smá- og stórþörungum. Í próteinrannsóknum er unnið að þróun aðferða til að einangra prótein og bæta eiginleika þeirra með markvissri vinnslu, meðal annars með notkun ensíma til niðurbrots próteina. Markmiðið er að bæta bæði vinnslueiginleika (t.d. leysanleika, vatnsheldni, olíubindingu, froðu- og ýrueiginleika) og rannsaka lífvirkni próteina. 

Matís hefur lagt áherslu á rannsóknir á þörungum, bæði smáþörungum og stórþörungum, og unnið að hagnýtingu þeirra. Meðal annars hefur verið unnið að þróun heilsusamlegra bragðefna úr þörungum í matvæli með það að markmiði að bæta lýðheilsu, og að þróun andoxunarefna og nýtingu þeirra í snyrtivörur og fæðubótarefni.

Mælingar á bragði og lykt eru mikilvægir gæðaþættir í matvælaiðnaði. Matís býður ýmis konar bragð- og lyktarefnarannsóknir sem skipta máli fyrir bragðgæði matvæla, geymslu- og framleiðsluaðferðir. Rannsóknir á viðhorfum neytenda er einnig stór liður í okkar rannsóknum. Viðhorf til ýmissa innihaldsefna geta skipt miklu máli og því mikilvægt að rannsaka viðhorf til notkunar og áhrifa þeirra innihaldsefna sem við vinnum með.

Verkefni faghópsins falla undir ýmsa þjónustuflokka:

Examples of projects that are underway in the professional group: 

Scroll to Top