Umhverfi og loftgæði

The Environment and Air Quality Group at Matis offers services related to Environmental Monitoring and operational permit measurements for industry in Iceland.

Þjónusta hópsins skiptist í þrjú áherslusvið:

  • Umhverfisvöktun og mengunarmælingar

Boðið er upp á ráðgjöf, verkefnisstjórn, greiningar og sýnatöku í tengslum við umhverfisvöktun og mengunarmælingar. Sérfræðiþekking starfsmanna hópsins nær einnig yfir íslenskar og evrópskar reglugerðir, bestu aðgengilegu tækni (BAT) og staðlaðar greiningaraðferðir.

  • Útblásturs- og loftgæðamælingar

Hópurinn býr yfir sérhæfðum búnaði til sýnatöku í útblæstri, inni- eða útilofti. Algengustu mæliþættir eru: ryk, gastegundir, flæðihraði og -magn, þungmálmar, lífræn efnasambönd.

  • Þjónusta við loftgæðastöðvar

Boðið er upp á þjónustu, viðhald og kvörðun á mælitækjum á loftgæðastöðvum, t.d. svifryksmælum, SO2 mælitæki, NOx mælitæki o.fl.. Sérfræðingar okkar geta einnig sinnt ráðgjöf varðandi val á mælitækjum og uppsetningu á stöðvum. Auk þess er boðið upp á gagnavinnslu, úrvinnslu og samantekt á gögnum frá stöðvum.

Matís getur einnig greint flest mengunarefni í teknum sýnum á faggildri efnagreiningastofu sinni (Efnamælingar) eða hjá ALS Scandinavia sem Matís er umboðsaðili fyrir á Íslandi.

Scroll to Top